Skipulagstillagan bíður staðfestingar umhverfisráðherra.
19. mars 2009
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti þann 4. desember 2008 tillögu að aðalskipulagi Flóahrepps í fyrrum Villingaholtshreppi.
Tillgan gerir m.a. ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Alls bárust 215 athugasemdir við tillöguna í heild, en af þeim voru um 160 vegna Urriðafossvirkjunar, en ekki 17 eins og ranglega var sagt í frétt hér á vefnum 30. janúar sl. Er það hér með leiðrétt.
Sveitarstjórn Flóahrepps svaraði þessum athugasemdum í desember og sendi skipulagstillöguna til Skipulagsstofnunar til meðferðar. Skipulagsstofnun hefur nú afgreitt tillöguna og sent hana til umhverfisráðherra sem þarf að staðfesta hana. Standa vonir til þess að það gerist á næstu vikum.
Eftir staðfestingu umhverfisráðherra á aðalskipulagstillögu Flóahrepps verða allar fjórar fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá og Tungnaá komnar á aðalskipulag, en Búðarhálsvirkjun, Hvammsvirkjun og Holtavirkjun eru á aðalakskipulagi og tvær síðastnefndu fóru endanlega inn á aðalskipulag 2008 þegar Skeiða- og Gnúpverjahreppur samþykkti aðalskipulagstillögu þess efnis. Jafnframt hafa önnur sveitarfélög sem Urriðafossvirkjun snertir þegar afgreitt virkjunina inn á aðalskipulag.
Á myndinni hér að ofan má sjá Urriðafossvirkjun teiknaða inn á ljósmynd. Virkjunin verður 130MW. Heiðarlón verður tæplega 9 ferkílómetrar og virkjað fall er 40,6 metrar. Virkjað rennsli verður um 370 rúmmetrar/sek. Smellið á myndina til að stækka hana.
Til baka