Hvammsvirkjun
Uppsett afl Hvammsvirkjunar verður 82 MW og orkugeta hennar verður um 665 GWst/ári. Inntakslón Hvammsvirkjunar, Hagalón, verður myndað með stíflu í Þjórsá ofan við Minnanúpshólma og stíflugörðum á austurbakka árinnar. Stöðvarhús verður staðsett nærri norðurenda Skarðsfjalls í Landsveit í landi Hvamms og verður það að mestu leyti neðanjarðar. Frá inntaksmannvirkjum við Hagalón liggja um 400 m löng aðrennslisgöng að virkjuninni. Frá virkjun fellur vatnið um jarðgöng og síðan opinn skurð til Þjórsár neðan við Ölmóðsey.