Mat á umhverfisáhrifum og skipulagsmál

Í apríl 2003 var Skipulagsstofnun afhent til úrskurðar skýrsla um mat á umhverfisáhrifum vegna virkjunar Þjórsár við Urriðafoss og Núp. Í matsskýrslunni um Núpsvirkjun voru lagðar fram tvær jafngildar tillögur að virkjun þessa hluta Þjórsár.

Annars vegar var um að ræða virkjun 56 m falls í einni virkjun, Núpsvirkjun og hins vegar virkjun samtals 50–52 m falls í tveimur virkjunum, Hvammsvirkjun (32–34 m fall) og Holtavirkjun (18 m fall).  Landsvirkjun hefur nú fallið frá virkjun í einu þrepi og fyrirhugar að reisa Hvammsvirkjun og Holtavirkjun.
 
Á þessum síðum koma fram þau gögn sem lögð voru fram til Skipulagsstofnunar vegna mats á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra virkjana.



 

Flýtileiðir


Tungumál


Leit


Breyta um leturstærð