11. september 2009
Fáar fréttir í óvissuástandi
Vegna óvissu í stöðu mála allt frá því í október 2008 hafa fáar fréttir birst hér á síðunni allt þetta ár.
11. september 2009
Þrívíddarmyndir af Urriðafossvirkjun
Þrívíddarmyndir af Urriðafossvirkjun hafa verið uppfærðar á vefnum.
19. mars 2009
Skipulagstillagan bíður staðfestingar umhverfisráðherra.
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti þann 4. desember 2008 tillögu að aðalskipulagi Flóahrepps í fyrrum Villingaholtshreppi.
6. mars 2009
Lagfæring á myndum
Við yfirferð á nýjum þrívíddarmyndum af Urriðafossvirkjun komu í ljós gallar.
5. mars 2009
Fleiri þrívíddarmyndir af Urriðafossvirkjun
Þá hafa fleiri þrívíddarmyndir af Urriðafossvirkjun verið settar inn.
26. febrúar 2009
Þrívíddarmyndir af Urriðafossvirkjun komnar inn
Nú eru þrívíddarmyndir komnar á vefinn af Urriðafossvirkjun.
25. febrúar 2009
Þrívíddarmyndir af Holtavirkjun komnar inn
Nú hafa nýjar þrívíddarmyndir af Holtavirkjun verið settar inn á vefinn.
24. febrúar 2009
Þrívíddarmyndir á vefinn
Nú hefur nýjum þrívíddarmyndum verið bætt inn á vefinn fyrir Hvammsvirkjun.
30. janúar 2009
Urriðafossvirkjun á aðalskipulagi í Flóahreppi
Sveitarstjórn Flóahrepps afgreiddi breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna fyrrum Villingaholtshrepps á fundi sínum þann 4. desember sl.
28. janúar 2009
Uppsetning vinnubúða við Búðarháls
Unnið er að því þessa dagana að koma upp vinnubúðum á Búðarhálsi. Er það liður í undirbúningi fyrir virkjunarframkvæmdir á staðnum.
14. janúar 2009
Skýrsla veiðimálastofnunar um lífríki Þjórsár
Í þessari skýrslu eru teknar saman niðurstöður á rannsóknum Veiðimálastofnunar á árunum 2003 til 2007 vegna fyrirhugaðra virkjana.
29. október 2008
Undirbúningur fyrir Búðarhálsvirkjun
Undirbúningur fyrir virkjun á Búðarhálsi stendur yfir þessa dagana.
3. september 2008
Landsvirkjun á landbúnaðarsýningu!
Fulltrúar Landsvirkjunar kynntu áform fyrirtækisins á Suðurlandi á fjölmennri landbúnaðarsýningu á Hellu.
1. september 2008
Fornleifarannsóknir ganga vel
Áfram hefur verið unnið að fornleifarannsóknum í landi Þjótanda.
12. ágúst 2008
Vatnamælingakerfi Landsvirkjunar
Nú geta áhugasamir fylgst með vatnamælingum Landsvirkjunar við Þjórsá.
9. ágúst 2008
Fornleifarannsóknir
Í tengslum við undirbúning á virkjanaframkvæmdum hefur verið unnið að fornleifarannsóknum á áhrifasvæðum virkjananna þriggja í neðri Þjórsá. Það er Fornleifafræðistofan ehf. sem annast rannsóknirnar undir forystu Bjarna F. Einarssonar, fornleifafræðidoktors.
8. ágúst 2008
Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun hefjast að nýju
Landsvirkjun hefur ákveðið að halda áfram nú þegar framkvæmdum við
Búðarhálsvirkjun. Fyrstu útboðsgögn vegna framkvæmdanna verða send út 11. ágúst
nk.
14. júlí 2008
Spurt og svarað
Bætt hefur verið inn nýjum flokk hér á síðunni, "Spurt og svarað".
25. júní 2008
Hvamms- og Holtavirkjun samþykktar inn á aðalskipulag
Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti samhljóða auglýsta tillögu að breytingu á aðalskipulagi, sem gerir ráð fyrir Hvamms- og Holtavirkjunum inni, á fundi hreppsnefndarinnar þann 23. júní sl.
10. júní 2008
Skýrsla um áhættumat virkjana í Þjórsá neðan Búrfells
Í skýrslunni er gerð grein fyrir þeirri vá sem til staðar er á svæðinu, nátturuvá, svo sem jarðskjálftum, eldgosum og jökulhlaupum, bilunum og manngerðri vá.
19. maí 2008
Virkjanir í Þjórsá neðan Búrfells, áhrif á lífríki í vatni og mótvægisaðgerðir
Stutt samantekt eftir Sigurð Guðjónsson og Magnús Jóhannsson hjá Veiðimálastofnun
30. apríl 2008
Vettvangsferðir til landeigenda
Síðastliðinn mánudag fóru fulltrúar LV ásamt fulltrúum hönnuða til að skoða möguleg efnistöku- og námusvæði í löndum Flagbjarnarholts og Skarðs í Landsveit.
18. apríl 2008
Viljayfirlýsing um netþjónabú undirrituð í Þorlákshöfn
Á fundi í Þorlákshöfn í dag var undirrituð viljayfirlýsing milli Ölfushrepps og fyrirtækisins Greenstone ehf. um undirbúning á byggingu hátæknivædds netþjónabús í Þorlákshöfn.
17. apríl 2008
Kynning á niðurstöðum áhættumats á Laugalandi
Haldinn var vel sóttur fundur til að kynna niðurstöður áhættumats vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár á Laugalandi í Holtum miðvikudaginn 16. apríl sl.
8. apríl 2008
Kynning á áhættumati fyrir nýjar virkjanir í Þjórsá neðan Búrfells
Niðurstöður áhættumats fyrir fyrirhugaðar virkjanir verða kynntar íbúum Ásahrepps og Rangárþings ytra miðvikudaginn 16. apríl kl. 20:30.
19. mars 2008
Rannsóknir Veiðimálastofnunar í Þjórsá
Á undanförnum árum hafa farið fram umfangsmiklar rannsóknir á lífríkinu í Þjórsá.
19. mars 2008
Kynningarfulltrúi
Landsvirkjun hefur fengið Ingvar P. Guðbjörnsson til að annast ýmis verkefni tengd almannatengslum vegna fyrirhugaðra virkjana í Þjórsá.
14. mars 2008
Áhættumat fyrir Holta- og Hvammsvirkjanir
Lokið var nýverið gerð áhættumats fyrir Holta- og Hvammsvirkjanir og var það kynnt á opnum fundi í Árnesi sl. miðvikudag.
11. mars 2008
Sett út fyrir nýrri veglínu
Þann 10. mars sl. fóru mælingamenn frá Verkfræðistofu Suðurlands og settu út fyrir nýrri veglínu í löndum Minni-Valla og Vindáss í Landsveit.
11. mars 2008
Frétt verður fréttaefni
Fréttablaðið viðurkennir í laugardagsblaðinu 8. mars að meginatriði í frétt blaðsins af samningum Landsvirkjunar við Verne Holding byggist á orðavali blaðsins sem ranglega var eignað upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar.
6. mars 2008
Rannsóknir við fyrirhuguð mannvirki
Í janúar lauk jarðfræðirannsóknum vegna Hvammsvirkjunar. Boraðar voru alls 24 kjarnaholur, samtals um 1100 metrar og 19 loftborsholur, samtals um 500 metrar.
5. mars 2008
Orkan í neðri hluta Þjórsár seld með fyrirvara um að leyfi fáist
Í samningi á milli Landsvirkjunar og Verne Holding er fyrirvari um að að öll leyfi fáist til þess að hægt sé að hefja raforkusölu.
7. febrúar 2008
Búðarhálsvirkjun breytir ekki áformum í neðri hluta Þjórsár
Landsvirkjun hefur tekið aftur til skoðunar áform um byggingu Búðarhálsvirkjunar. Á sínum tíma voru áform um byggingu virkjunarinnar lögð til hliðar.
16. janúar 2008
Samningar við landeigendur, sveitarstjórnir og ríkið
Eins og kunnugt er af fréttum taldi ríkisendurskoðun að samkomulag ríkisins og Landsvirkjunar frá maí 2007 væri ekki bindandi fyrir ríkið varðandi framsal vatnsréttinda.
16. janúar 2008
Skipulagsmál í Flóahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Á síðustu mánuðum hefur verið fjallað um aðalskipulag í hreppunum tveimur.
16. janúar 2008
Staða hönnunar og rannsókna
Í lok maí á síðastliðnu ári var samið á grundvelli útboðs við nýjan ráðgjafa um útboðs- og lokahönnun virkjana í neðri hluta Þjórsár. Um er að ræða samstarf þriggja verkfræðistofa, VST hf, VGK-Hönnun hf og Rafteikningu hf.
16. desember 2007
Viðræður Landsvirkjunar og landeigenda halda áfram á grundvelli Titan samninganna
Athugasemdir ríkisendurskoðunar við samkomulag Landsvirkjunar og ríkisvaldsins frá 9. maí sl. breyta ekki því meginatriði sem felst í samkomulaginu, að Landsvirkjun hafi heimild til að ræða og semja við landeigendur á grundvelli Títan-samninganna.
12. desember 2007
Nýtt fréttabréf um virkjanir í Þjórsá
Í þessu þriðja tölublaði er meðal annars fjallað um lækkun Heiðarlóns, sölu orku frá fyrirhuguðum virkjunum, grunnvatns- og jarðfræðirannsóknum, gerð áhættumats og samninga við landeigendur.
12. desember 2007
Lækkun Heiðarlóns
Kristján Már Sigurjónsson, verkefnisstjóri hjá VST, segir að hönnun nýju virkjananna í Þjórsá miði vel áfram. Meðal annars er unnið að nokkrum breytingum sem draga úr stærð Heiðarlóns ofan Urriðafoss.
12. desember 2007
Orkusala frá fyrirhuguðum virkjunum
Horfið hefur verið frá hugmyndum um orkusölu til fyrirtækja sem hyggja á byggingu nýrra álvera á Suður- og Vesturlandi.
12. desember 2007
Jarðfræðirannsóknir í fullum gangi
Matthías Loftsson, jarðverkfræðingur hjá VGH hönnun hf. hefur haft umsjón með ýmis konar jarðfræðirannsóknum á fyrirhuguðum virkjunarsvæðum.
12. desember 2007
Rannsóknir á grunnvatni á Skeiðum
Staða grunnvatns ræðst fyrst og fremst af veðurfari, úrkomu og hláku.
12. desember 2007
Gerð áhætumats vegna allra virkjana á lokastigi
Lokið var nýverið við gerð matsins fyrir Urriðafossvirkjun og hefur það verið kynnt sveitarstjórnum og opinberlega.
12. desember 2007
Samningar við landeigendur
Á undanförnum vikum hefur verið lokið við gerð samkomulags við eigendur jarða í Skeiða og Gnúpverjahreppi vegna Hvammsvirkjunar.
22. nóvember 2007
Kynningarfundur Landsvirkjunar með sveitarstjórnarmönnum við neðanverða Þjórsá
Á fundinum sem haldinn var að Hótel Rangá í gær voru flutt 6 erindi þar sem lýst var stöðu hönnunar og undirbúnings fyrirhugaðra virkjana.
31. október 2007
Samningar við landeigendur
Landsvirkjun hefur ekki áform um að beita heimildum til eignarnáms gagnstætt því sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum.
23. október 2007
Fornleifarannsóknir í landi Þjótanda
Í kjölfar fornleifarannsóknar sumarið 2007 segja Sandra Sif Einarsdóttir og Bjarni F. Einarsson, fornleifafræðingar, frá því helsta sem rannsókn rústa á svæðinu hefur beinst að.
19. október 2007
Vatnsréttindi í Þjórsá fela í sér heimild til að mynda nauðsynleg inntakslón
Fullyrðingar Atla Gíslasonar um að virkjanaáform Landsvirkjunar í neðri hluta Þórsár brjóti gegn vatnalögum standast ekki.
18. október 2007
Hönnuðir Urriðafossvirkjunar kynna áhættumat fyrir íbúum Flóahrepps
Verkfræðistofan VST kynnti niðurstöður áhættumats fyrir Urriðafossvirkjun í Þjórsá á opnum fundi með íbúum Flóahrepps fimmtudaginn 18. október í félagsheimilinu Félagslundi.
11. október 2007
Rannsóknir á lífríki Þjórsár og fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir
Rannsóknir á lífríki Þjórsár hafa staðirð yfir síðastliðin 15 ár. Í þessari grein er farið yfir helstu niðurstöður þessara rannsókna
12. september 2007
Nýtt fréttabréf um virkjanir í neðanverðri Þjórsá
Nýlega kom út annað tölublað fréttabréfs um fyrirhugaðar virkjanir í neðanverðri Þjórsá.
10. september 2007
Öryggi fólks og mannvirkja í fyrirrúmi
Mikil áhersla er lögð á það við hönnun virkjananna í neðri hluta Þjórsár að tryggja öryggi fólks og eigna á svæðinu með því að stíflur og mannvirki standist utanaðkomandi álag en virkjanirnar hafa þá sérstöðu að vera í byggð.
10. september 2007
Ábendingar og nýjar útfærslur minnka inntakslónin
Við undirbúning fyrirhugaðra virkjana í Þjórsá hafa komið fram ýmsar tillögur að breytingum á hönnun þeirra.
10. september 2007
Leggjum áherslu á gott samstarf og kynningu á fyrirliggjandi verkefnum
„Við leggjum áherslu á að vinna að undirbúningi og framkvæmdum í samráði við heimamenn” segir Friðrik Sophusson forstjóri Landsvirkjunar í viðtali sem birtist í nýútkomnu fréttabréfi um virkjanir í neðanverðri Þjórsá.
31. ágúst 2007
Hefur Landsvirkjun leyfi til rannsókna og undirbúnings virkjana í neðanverðri Þjórsá?
Þessari spurningu er svarað í eftirfarandi grein.
27. ágúst 2007
Fjórir skálar frá landnámsöld finnast
Landnámsskálarnir eru við Urriðafoss, í landi Þjótanda, undir Skarðsfjalli og gegnt Haga.
16. ágúst 2007
Verkferli hönnuða fyrir virkjanir í Neðri-Þjórsá
Landsvirkjun hefur gert samning við ráðgjafana VST, VGK-Hönnun og Rafteikningu um hönnun virkjana við Neðri-Þjórsá.
12. júní 2007
Áður óþekktar fornar rústir finnast við Þjótanda
Fornleifarannsóknir Fornleifafræðistofunnar hafa staðið yfir í hálfan mánuð á nokkrum stöðum við Þjórsá.
30. maí 2007
Hönnun virkjana og samningar við landeigendur fer vel saman
Umræða hefur skapast um þá ráðstöfun Landsvirkjunar að ganga frá samningum um hönnun virkjana áður en gengið hefur verið frá samningum við landeigendur.
30. maí 2007
Skrifað undir samning vegna ráðgjafaþjónustu
Í dag voru samningar undirritaðir við VST hf., VGK-Hönnun hf. og Rafteikningu hf. vegna ráðgjafaþjónustu og útboðshönnunar Hvammsvirkjunar, Holtavirkjunar og Urriðafossvirkjunar.
24. maí 2007
Kynningarfundur um virkjanir í neðri hluta Þjórsár
Landsvirkjun tók þátt í kynningarfundi um nýjar virkjanir í neðanverðri Þjórsá sem haldinn var í Laugalandi í Holtum í gær.
24. maí 2007
Tilboði í ráðgjafaþjónustu tekið
Landsvirkjun hefur formlega tekið tilboði samstarfsaðilanna VST hf, VGK-Hönnunar hf, og Rafteikningar hf. í ráðgjafaþjónustu undirbúnings Hvammsvirkjunar, Holtavirkjunar og Urriðafossvirkjunar í neðri hluta Þjórsár.
22. maí 2007
Fornleifarannsóknir í landi Þjótanda
Fornleifarannsóknir hófust nýlega í landi Þjótanda vegna Urriðafossvirkjunar.
24. apríl 2007
Jarðfræðirannsóknum lokið
Í byrjun apríl lauk nokkuð umfangsmiklum jarðfræðirannsóknum á öllum virkjunarsvæðum við neðanverða Þjórsá.
18. apríl 2007
Vatnsréttindi í neðri hluta Þjórsár
Títan hf. eignaðist nær öll vatnsréttindi vegna þeirra virkjana sem nú eru fyrirhugaðar í neðri hluta Þjórsár á árunum 1914 til 1924.
2. apríl 2007
Fornleifarannsóknir vegna nýrra virkjana í Þjórsá hafnar
Rannsóknum við Akbraut lokið og athuganir á rústum í landi Þjótanda standa fyrir dyrum.
16. mars 2007
Staða skipulagsmála
Virkjanirnar snerta skipulagsyfirvöld í fjórum hreppum; Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Ásahrepp, Rangárþing ytra og Flóahreppi.
15. mars 2007
Fjárhagsleg tilboð í hönnun virkjana opnuð
Í gær voru fjárhagsleg tilboð í hönnun virkjana í neðri hluta Þjórsár (NTH-60) opnuð. Tilboðin voru tvískipt, annars vegar var um tæknilegt tilboð að ræða og hins vegar fjárhagslegt.
8. mars 2007
Virkjunarstæði í Þjórsá, fyrir og eftir virkjun
Á myndum sem Landsvirkjun hefur útbúið má sjá stærð þeirra lóna sem myndast við fyrirhugaðar Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjanir.
13. febrúar 2007
Þrjú tillboð bárust í hönnun virkjana
Hönnunarvinnunni er skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanga, sem stendur frá mars 2007 til mars 2008, felst hönnun allra virkjananna fyrir útboð.
18. janúar 2007
Formlegar viðræður við landeigendur hafnar
Formlegar samningaviðræður við landeigendur og ábúendur vegna nýrra virkjana í Þjórsá hófust nú í janúar. Allt það tjón sem framkvæmdir og virkjanirnar kunna að valda verður bætt.
17. janúar 2007
Hönnun virkjana boðin út
Stjórn Landsvirkjunar samþykkti á síðasta fundi sínum fyrir áramót að heimila forstjóra fyrirtækisins að ráðast í útboð á hönnun virkjananna í Neðri-Þjórsá.
17. janúar 2007
Hver kaupir rafmagnið?
Landsvirkjun undirbýr virkjunarkosti óháð einstökum kaupendum. Frá ársbyrjun 2006 hefur verið í gildi samkomulag við Alcan sem á og rekur álverið í Straumsvík um að raforka úr nýjum virkjunum í Þjórsá yrði nýtt til stækkunar álvers Alcan.
14. desember 2006
Nýtt fréttabréf
Á næstu misserum mun Landsvirkjun gefa út fréttabréf þar sem sagt er frá framgangi verkefna sem tengjast virkjunum í Neðri-Þjórsá.
Til baka